Eignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða námu 283,9 milljörðum króna í lok september og lækkuðu um 877 milljónir króna á milli mánaða.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans.

Eignirnar eru 93% innlend verðbréf sem lækkuðu um 1,5 milljarða og námu 265,9 milljörðum króna í lok mánaðarins. Þar af námu íbúðabréf 96,2 milljörðum króna og önnur ríkisbréf 97,3 milljörðum króna.

Þá kemur fram að erlend verðbréf námu 10,1 milljarði og hækkuðu um 269 milljónir króna í lok september.

Í lok september var opið fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini í 53 sjóðum. Auk þess voru 17 sjóðir í slitaferli taldir með í birtum gögnum í september, þar sem verið er að gera upp eignir sjóðanna áður en þeim verður lokað.