Eignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða námu 235,7 milljörðum króna í lok mars og hækkuðu um 11,6 milljarða á milli mánaða.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.

Innlend verðbréf hækkuðu 14,5 milljarða í mánuðinum og þar af nam hækkun annarra ríkisbréfa 10,4 milljörðum króna. Sjóður og bankainnstæður lækkuðu um 3,6 milljarða í í mánuðinum.

Í lok mars var opið fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini í 51 sjóðum. Auk þess voru 18 sjóðir í slitaferli taldir með í birtum mars gögnum, þar sem verið er að gera upp eignir sjóðanna áður en þeim verður lokað.