Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.245 milljörðum króna í lok febrúar og lækkuðu um 25 milljarða króna í mánuðinum.

Útlán og eignarleigusamningar jukust um 94 milljarða króna í mánuðinum og námu 1.082 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en þar kemur fram að ástæða aukningarinnar er að eignir, sem áður voru flokkaðar undir kröfur á innlendar lánastofnanir, hafa verið fluttar í verðtryggð skuldabréf.

Eigið fé nam 29 milljörðum króna febrúar og lækkaði um 1 milljarð milli mánaða.