Eik Fasteignafélag er nýr félagi í Viðskiptaráði Íslands, en þetta kemur fram í frétt á vef ráðsins.

„Eik fasteignafélag var stofnað árið 2002 sem sérhæft fyrirtæki í eignarhaldi og útleigu á atvinnuhúsnæði. Félagið leggur áherslu á fjárfestingar í helstu viðskiptakjörnum höfuðborgarinnar.

Viðskiptaráð býður Eik fasteignafélag velkomið í hópinn og hlakkar til árangursríks samstarfs á komandi árum,“ segir í fréttinni.