Eik fasteignafélag mun hleypa Húsasmiðjunni úr einum leigusamning þar sem enginn rekstur er.  Einnig mun félagið veita Húsasmiðjunni tímabundna leigulækkun sem mun að hluta til vera tengd árangri Húsasmiðjunnar á næstu árum.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en í skýrslu stjórnar í árshlutareikningi Eikar fasteignafélags, sem birtur var í ágúst síðastliðnum, kom fram að Húsasmiðjan, sem er stærsti leigutaki félagsins, hafi óskað eftir viðræðum um leigulækkun í tengslum við endurfjármögnun Húsasmiðjunnar.

Eins og fram kom í gær hefur náðst samkomulag milli Eikar fasteignafélags, Húsasmiðjunnar og Landsbankans þess eðlis að Landsbankinn breytir hluta af kröfum sínum á Húsasmiðjuna í eigið fé og tryggir þar með áframhaldandi rekstur hennar.

Þá kemur fram í tilkynningunni að áætluð áhrif þessa, þ.e. að hleypa Húsasmiðjunni úr einum leigusamningi og tímabundna leigulækkun, á eigið fé Eikar fasteignafélags eru um tvö hundruð milljón krónur.