Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland, það er OMX Iceland 8 vísitalan, breytist um áramótin þegar HB Grandi fer út úr henni og Eik fasteignafélag hf. kemur nýtt inn í vísitöluna í þess stað.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá kauphöllinni í kjölfar endurskoðunar sem gerð er tvisvar á ári, og tekur hún gildi 2. janúar 2017.

Vísitalan er samsett af þeim átta félögum sem hafa mestan seljanleika á Nasdaq Iceland. Ræðst vægi félaga í OMX Iceland 8 vísitölunni af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum á Nasdaq Iceland er hluti af vísitölnni.

Þau félög sem verða í vísitölunni frá og með áramótum verða eftirfarandi:

  • Eik fasteignafélag hf. (EIK)
  • Eimskipafélag Íslands hf. (EIM)
  • Hagar hf. (HAGA)
  • Icelandair Group hf. (ICEAIR)
  • Marel hf. (MARL)
  • N1 hf. (N1)
  • Reitir fasteignafélag hf. (REITIR)
  • Síminn hf. (SIMINN)