Eik fasteignafélag og Heimshótel hafa undirritað kauptilboð fyrrnefnda félagsins á öllu hlutafé þess síðarnefnda.

„Fasteignir sem um ræðir og eru í eigu Heimshótela eru Pósthússtræti 2, Tryggvagata 28 og Hafnarstræti 9-11 í Reykjavík. Fasteignirnar eru tæpar 6 þúsund fermetrar að stærð og staðsettar í hjarta Reykjavíkur," segir í tilkynningu frá Eik vegna kaupanna.

„Eik fasteignafélag á fyrir flestar eignir sem liggja að Hótel 1919 og verður þessi eign því mjög góð viðbót við núverandi eignasafn félagsins í miðborg Reykjavíkur. Með kaupum á Hótel 1919 mun Eik eiga nánast allar fasteignir á reitnum sem afmarkast af Hafnarstræti, Tryggvagötu og Naustinu. Miklir möguleikar eru því til framþróunar á þeim reit fyrir félagið," er haft eftir Garðari Hannesi Friðjónssyni, forstjóra Eikar.

Gefa ekki upp kaupverð

Hótel 1919 er 88 herbergja hótel við Pósthússtræti 2, en þar eru einnig rekinn veitingastaður og önnur þjónusta á jarðhæð. Leigusamningur við Hótel 1919 gildir til tíu ára en hótelið er með rekstrarsamning við SAS Hotel A/S um rekstur undir nafni Radisson Blu.

Í tilkynningu segir að kaupverð sé trúnaðarmál „og getur tekið breytingum eftir því hvert endanlegt kaupandlag verður í kaupsamningi"

Þar segir einnig: „Kauptilboð var undirritað með ákveðnum fyrirvörum, meðal annars um niðurstöður áreiðanleikakönnunar. Ef af kaupunum verður er áætlað að NOI (Net Operating Income eða Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir) Eikar fasteignafélags hækki um 6-7% miðað við útgefna rekstrarspá fyrir árið 2015, auk þess sem eignasafn félagsins mun stækka um 5-6%. Kaupin verða fjármögnuð með lántöku og handbæru fé félagsins."