Eik fasteignafélag hefur undirritað kaupsamning á Slippnum fasteignafélagi.  Heildarvirði kaupanna eru tæpir 4,5 milljarðar.

Fasteignirnar sem eru í eigu Slippsins fasteignafélags eru Mýrargata 2 til 8, Mýrargata 12 og Mýrargata 14-16 og eru staðsettar í hjarta miðbæjar Reykjavíkur og eru 6.504 fermetrar í heildina. Flugleiðahótel eða Hótel Marina er leigutaki allra fermetranna og er með langtímaleigusamning. Þetta hefur áður komið fram í frétt Viðskiptablaðsins um málið.

„Vænt ávöxtun fjárfestingarinnar fyrir árið 2017 er tæplega 6,7% m.v. núverandi forsendur um tekjur og gjöld. Við kaupin munu hóteleignir verða 13% af virði fasteigna Eikar og verða 99% af þeim eignum staðsettar í miðbæ Reykjavíkur,“ sagði í tilkynningu um undirritun kauptilboðs í Slippinn sem dagsett er þann 18. nóvember síðastliðinn.

Gert er ráð fyrir því að afhending fari fram á fyrsta ársfjórðungi 2017. Kaupsamningurinn er háður samþykki Samkeppniseftirlitsins.