Stjórn Eikar fasteignafélags hf. og Arion banki hf., eigandi Landfesta ehf., hafa ákveðið að hefja viðræður um hugsanlegan samruna.

Markmið viðræðnanna er að leggja mat á eignarhlutföll í sameinuðu félagi og væntan ábata hluthafa félaganna tengdan samlegðartækifærum félaganna og hugsanlegri skráningu hlutafjár hins sameinaða félags í kauphöll.

Í viðræðum aðila er gert ráð fyrir því að Eik fasteignafélag hf. ljúki þeim kaupum fasteigna af SMI ehf., sem félagið hefur skuldbundið sig til. Í tilkynningu segir að ef af samruna félaganna verður, verður hið sameinaða félag eitt sterkasta fasteignafélag landsins og augljós valkostur viðskiptamanna og fjárfesta.

Gert er ráð fyrir að niðurstaða viðræðna aðila liggi fyrir innan fjögurra vikna.