Eimskip áformar að greiða hluthöfum 10-30% arð af hagnaði á ári. Þetta kom fram á hádegisfundi VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, þar sem fjallað er um Eimskip í aðdraganda skráningar félagsins á markað.
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, sagði m.a. stöðu Eimskips hafa batnað mjög eftir að félagið fór í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu fyrir þremur árum. Á hinn bóginn þurfi að fara aftur til ársins 1996 til að finna sama magn sem fer í gegnum Sundahöfn og nú.
Þá kom fram á fundinum að félagið sé ekki mjög skuldsett. Á sama tíma og félagið sé fjármagnað í erlendri mynt þá séu tekjurnar að stórum hluta í erlendum gjaldeyri.