Áfrýjunarnefnd samkeppnismála kvað upp í dag þann úrskurð að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því í desember síðast liðnum um að Eimskip hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á sjóflutningamarkaði og brotið þannig gegn bannákvæðum samkeppnislaga, skuli standa. Nefndin lækkaði hins vegar sekt þá sem lögð var á félagið úr 310 milljónum króna í 230 milljónir. Er þetta hæsta sekt sem áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur lagt á vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu.

Eimskip skaut ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndarinnar á sínum tíma og hélt því fram að málinu hafi ranglega verið beint að félaginu, það væri ekki markaðsráðandi og aðgerðir þess hefðu falið í sér eðlilega samkeppni en ekki brot á samkeppnislögum.

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Eimskip hefði brotið samkeppnislög með markaðsatlögu sem beindust gegn Samskipum og gerð fjölmargra ólögmætra einkakaupasamninga við viðskiptavini sína. Með einkakaupum í þessu samhengi er átt við að samninga þar sem Eimskip skuldbatt viðskiptavini sína til þess að kaupa flutningaþjónustu einungis af félaginu. Var Eimskip sektað um 310 milljónir króna.

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála kemst að þeirri niðurstöðu í úrskurði sínum að Samkeppniseftirlitið hafi réttilega beint málinu að Eimskip. Jafnframt var staðfest að félagið væri í markaðsráðandi stöðu. Ennfremur staðfesti áfrýjunarnefnd að Eimskip hefði brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga með aðgerðum sem miðuðu að því að veikja Samskip verulega og varanlega og með gerð ólögmætra einkakaupasamninga. Telur áfrýjunarnefnd að um hafi verið að ræða alvarleg brot á samkeppnislögum.