Eimskip hyggst gera breytingar á gámasiglingakerfi félagsins, að því er fram kemur í tilkynningu félagsins til Kauphallar Íslands. Til stendur að einfalda siglingaleiðir til og frá Evrópu og Skandinavíu og gera félaginu kleift að bjóða brottfarir frá Árósum og Rotterdam til Íslands degi síðar en nú er ásamt styttri flutningstíma.

Breytingarnar eru jafnframt undanfari á samstarfi við Royal Arctic Line sem áætlað er að hefjist á fyrsta ársfjórðungi 2020. Þá mun Eimskip áfram bjóða hraðþjónustu fyrir útflutning og innflutning á ferskum vörum til og frá Íslandi og Færeyjum.

„Félagið mun fækka um eitt skip í Evrópu hluta kerfisins en á móti taka í notkun stærri skip og þar með  viðhalda sambærilegri flutningsgetu, en með lægri einingakostnaði. Nýlegar fjárfestingar í hafnaraðstöðu í Sundahöfn, með stækkun gámahafnar, nýjum gámakrana og stærri viðlegu er forsenda þess að geta tekið inn stærri og hagkvæmari skip,“ segir í tilkynningunni.

Áherslur breytinganna er meðal annars aukin og bætt þjónusta við viðskiptavini í innflutningi til Íslands með brottför einum degi seinna frá helstu höfnum í Evrópu og styttri flutningstíma sem skapar aukin tækifæri fyrir innflutning á ferskum vörum. Einfaldari siglingaleiðir með stærri skipum auka áreiðanleika í siglingakerfinu. Fækka skipum í gámasiglingakerfinu um eitt og nota stærri skip með sambærilegri afkastagetu og lægri einingakostnaði.

Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri Eimskip segir í tilkynningunni að markmiðið með breytingunnni sé að auka arðsemi og styrkja grunnstoðir félagsins. „Breytingarnar á gámasiglingakerfinu sem við kynnum í dag eru mikilvægt skref á þeirri vegferð, sem að auki gerir félaginu kleift að auka þjónustu við viðskiptavini og áreiðanleika í kerfinu. Við erum að straumlínulaga siglingakerfið með færri og stærri skipum á einfaldari siglingaleiðum þannig að við getum flutt sambærilegt magn, með færri viðkomum í höfnum og með þeim hætti lækka einingakostnað. Að auki munu þessar breytingar leggja grunninn að áætluðu samstarfi við RAL.

Það er ánægjulegt að geta boðið viðskiptavinum styttri flutningstíma frá helstu höfnum í Evrópu til Íslands með brottför degi seinna sem skapar tækifæri í innflutningi á ferskum vörum. einnig mun nýja siglingakerfið styrkja útflutningsþjónustu frá Færeyjum og vera vel í stakk búið að styðja við frekari vöxt í Trans-Atlantic þjónustu.

Markmið félagsins um nettó lækkun rekstrarkostnaðar fyrir nýja siglingakerfið, þ.m.t. samstarf við RAL, er á bilinu 7-9 milljónir evra á ársgrundvelli. Það er hinsvegar mikilvægt að taka fram að markmið er háð nokkrum mikilvægum forsendum s.s. skilvirkni og áreiðanleika nýrra skipa og leiguskipa, skilvirkni í hafnarstarfsemi, samstarfinu við RAL og þróun olíumarkaða,“ segir Vilhelm Már.