Eimskip hefur eignast meirihluta í fyrirtækinu Harbour Grace CS Inc (HGCS) á Nýfundnalandi. Harbour Grace sér um frystigeymslu- og losunarþjónustu við togara í bænum Harbour Grace við Conception Bay á Nýfundalandi. Harbour Grace Inc hefur verið í 25% eigu Eimskips frá árinu 2000, en Eimskip hefur aukið eignarhlutdeild sína í 51% til að styrkja enn frekar stöðu sína á Nýfundnalandi með heildarlausnir fyrir viðskiptavini sína í sjávarútvegi að því er segir í frétt fyrirtækisins.

Auk frystigeymslu- og losunarþjónustu fyrir togara, býður Harbour Grace dreifingu um allan heim, en stærstu markaðir eru Evrópa, Austurlönd fjær og Ameríka.

Harbour Grace Coldstore var stofnað árið 1994 og er nú einn helstu atvinnurekandinn í Harbour Grace, rúmlega 3.000 íbúa bæ um 50 km fyrir utan St. John?s. Félagið býður fiskiskipum alhliða þjónustu, umboðsþjónustu, losun og lestun frystra afurða, geymslu, veiðarfæri og umbúðir, auk ýmiskonar fyrirgreiðslu og samskipta við flutningsaðila.

Eimskip hefur rekið eigin skrifstofu í St. John?s, höfuðborg Nýfundnalands frá árinu 1990 með það að markmiði að þjónusta þetta markaðssvæði, einkum með tilliti til sjávarútvegs. Einnig er Eimskip með sterka stöðu í innflutningi til svæðisins. Kaupin á meirihluta í Harbour Grace Coldstore eru mikilvægur liður í vexti Eimskips og þeirri stefnu fyrirtækisins að bjóða viðskiptavinum sínum heildarlausnir á sviði frysti- og kæliflutninga um allan heim.