Eimskipafélag Íslands fagnar 100 ára afmæli sínu á árinu en félagið var stofnað þann 17. janúar 1914.

„Það er skemmtilegt og spennandi ár framundan og haldið verður upp á afmælið með ýmsum viðburðum, stórum sem smáum. Það verður mikið um að vera. Sjálfur afmælisdagurinn er 17. janúar og þá verður mikil og glæsileg afmælishátíð haldin í Hörpunni,“ segir Ólafur W. Hand, forstöðumaður markaðs-og kynningardeildar Eimskips í tilkynningu.

Íslensk dægurtónlist í bland við sögu félagsins verður flutt á afmælisdaginn í Eldborgarsal Hörpunnar þar sem fram koma m.a. Björn Jörundur, Valdimar, KK, Bubbi Morthens, Sigríður Thorlacius, Egill Ólafsson, Magnús Eiríksson, Unnsteinn Manuel, Eyþór Ingi og Pálmi Gunnarsson.

„Eimskip er elsta skipafélag Íslands og hefur félagið frá upphafi lagt höfuðáherslu á skipaflutninga til og frá landinu en í dag býður Eimskip upp á alhliða flutningsþjónustu um allan heim,“ segir Ólafur. Eimskip rekur nú skrifstofur í 19 löndum og hefur umboðsmenn í fjölmörgum öðrum þar að auki.