Gengi hlutabréfa Eimskips féll um 3,62% í Kauphöllinni í dag. Talsvert viðskipti voru með bréfin eða 50 talsins. Veltan nam rúmum 420 milljónum króna. Talsverð velta var sömuleiðis með hlutabréf Eimskips í gær eða upp á 956 milljónir króna.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 1,19% og Marel um 1,03%. Þá lækkaði gengi bréfa Vodafone um 0,88%, Haga um 0,56% og Össurar um 0,4%.

Engin hækkun var á hlutabréfamarkaði í dag.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,06% og endaði hún í 1.169 stigum. Heildarveltan á hlutabréfamarkaði nam rúmum 706,4 milljónum króna.