Byggingavöruverslunin Bauhaus hefur gert samning við Eimskip sem felur það í sér að Eimskip mun annast alla flutninga fyrir fyrirtækið í nýja verslun fyrirtækisins við Vesturlandsveg.

Samningurinn við Eimskip er gerður að undangengnu útboði.

Eins og fram hefur komið í Viðskiptablaðinu er stefnt að opnun Bauhus í vor en framkvæmdir standa nú yfir í verslunarhúsnæði fyrirtækisins auk þess sem búið er að ráða stóran hluta starfsmanna.