Eimskipafélag Íslands hefur framlengt lánsábyrgð til kaupenda XL Leisure Group í Bretlandi, sem var veitt í tengslum við sölu á félaginu í október 2006.

Lánsfjárhæðin nemur 280 milljónum bandaríkjadala (18,5 milljarður króna) og er með gjalddaga þann 5. mars 2008.

Í ljósi markaðsaðstæðna hefur ábyrgðin verið framlengd til 5. maí nk. en þá er ráðgert að endurfjármögnun XL Leisure Group verði lokið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip.