Eimskipafélag Íslands hefur efnt til kynningar- og fræðsluátaks á Íslandi og í Færeyjum um mikilvægi notkunar reiðhjólahjálma barna og unglinga.

Af því tilefni gefur Eimskip öllum börnum á sjöunda aldursári á Íslandi reiðhjólahjálma, í samstarfi við Kíwanis.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Fyrstu bekkingum Ártúnsskóla voru afhendir fyrstu hjálmarnir í höfuðstöðvum Eimskips í dag.

Á næstu tveimur vikum munu Kiwanisfélagar heimsækja alla grunnskóla landsins og afhenda börnum hjálma og ræða við þau um umferðaröryggi og notkun hjálmanna.

Guðmundur P. Davíðsson, forstjóri Eimskips á Íslandi og Gylfi Ingvarsson, umdæmisstjóri Kiwanis afhentu Stellu Bjarkadóttur og Arnari Jóni Guðmundssyni í 1. bekk í Ártúnsskóla fyrstu hjálmana.

Fimm ára farsælt samstarf

Í tilkynningunni kemur fram að Eimskip og Kíwanis hafa undanfarin fimm ár átt mjög farsælt samstarf og hafa í sameiningu gefið og dreift rúmlega 23.000 hjálmum til grunnskólanema vítt og breitt um landið.

Markmið samstarfsins hefur verið að draga verulega úr slysatíðni barna í umferðinni, með öflugu fræðslustarfi um notkun hjálma, sem kostaðir hafa verið af Eimskip.

Eimskip og Kiwanis framlengdu nýlega samning sinn til næstu þriggja ára.

„Frá því að samstarf félaganna hófst hefur hjálmanotkun barna og unglinga aukist verulega og  almennt forvarnarstarf hefur einnig aukið þekkingu barna á notkun hjálmanna en afar mikilvægt er að þeir séu rétt stilltir og að börn fái góðar leiðbeiningar um notkun þeirra," segir í tilkynningunni.

Fræðslustarf í skólum er í góðu samstarfi við skólahjúkrunarfræðinga og með faglegum stuðningi Forvarnarhúss. Kynningarherferð Eimskips, Umferðarstofu og Reykjavíkurborgar

Eimskip, Umferðarstofa og Reykjavíkurborg hafa gert með sér samkomulag um kynningarátak um land allt undir nafninu „Gott á haus“. Á næstu 4-5 vikum verða blaða- og umhverfisauglýsingar átaksins sýnilegar,  þar sem þjóðþekktir einstaklingar sjást á hvolfi eða með öðrum orðum „á haus" með hjálm á höfði.

Markmið átaksins er fyrst og fremst að efla vitund fólks fyrir mikilvægi þess að nota reiðhjólahjálma og þá ekki hvað síst meðal barna og unglinga.

„Það er mikill fengur fyrir Kíwanis að hafa fengið Eimskip til liðs við okkur, sem hefur undanfarin fimm ár gert okkur kleift að gera hjálmaverkefnið að landsátaki. Það er ánægjulegt að sjá góðan árangur af okkar samstarfi, en á undanförnum árum höfum við séð mikla aukningu í notkun reiðhjólahjálma og sterkar vísbendingar um að starf okkar sé að bera árangur. Þá fellur verkefnið sérlega vel að meginmarkmiði Kíwanis „Hjálpum börnum heimsins“ og góð tímasetning að hefja kynningarátak okkar nú við upphaf sumars,“ segir Gylfi Ingvarsson, umdæmisstjóri hjá Kíwanis.

„Við höfum átt einstaklega gott samstarf við Kiwanis undanfarin ár og höfum nú ákveðið að leggja aukin þunga í kynningarátak okkar með samstarfi við Umferðarstofu og Reykjavíkurborg. Okkur er umhugað um umferðaröryggi, ekki síst hjá börnum og unglingum og vonumst við til að framlag okkar nýtist til að draga enn frekar úr alvarlegum reiðhjólaslysum og auki almennt umferðaöryggi. Í samstarfi við Kíwanis er markmið okkar að vera búnir að gefa hjálma til nær 40.000 grunnskólanema á næstu þremur árum,“ segir Guðmundur Davíðsson, forstjóri Eimskips á Íslandi.