Eimskip Flytjandi og Ríkiskaup hafa skrifað undir rammasaming til tveggja ára með endurnýjunarákvæðum að samningstíma loknum.  Samningurinn felur í sér innanlandsflutninga fyrir ríkisstofnanir um land allt sem nær til allra vöruflutninga innanlands á öllum áætlunarleiðum Eimskips Flytjanda og samstarfsaðila Flytjanda. Landflutningar Samskip voru áður með þennan samning. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskipi.

„Eimskip Flytjandi rekur öflugt þjónustunet í flutningum á Íslandi með þjónustumiðstöðvar í öllum landshlutum og alls 80 afgreiðslustaði. Stærstu Þjónustumiðstöðvarnar eru á Akureyri, Ísafirði, Reyðarfirði, Egilsstöðum, Neskaupstað, Selfossi og í Vestmannaeyjum. Hjá Eimskip Flytjanda starfa um 180 starfsmenn, auk starfsmanna samstarfsaðila sem eru vel á annað hundrað Guðmundur Nikulasson framkvæmdastjóri Eimskips Innanlands segir “ Það er ánægjulegt að Ríkiskaup hefur valið Eimskip Flytjanda sem aðal samstarfsaðila í flutningum innanlands og það er ákveðin viðurkenning fyrir þjónustu Flytjanda og starfsfólk þess,“ kemur i tilkynningu frá félaginu.