Gengi hlutabréfa Eimskips hefur hækkað um 8,73% í Kauphöllinni það sem af er degi. Velta með bréfin er nú um það bil 1,1 milljarður króna en rúmlega 2 tímar eru liðnir frá því að viðskipti hófust fyrir daginn.

Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í morgun birti Eimskip afkomutilkynningu fyrir fyrsta fjórðung ársins í gærkvöldi. Hagnaður félagsins var 252 milljónir króna a fjórðungnum sem er 21,1% hækkun milli ára.

Lesa má nánar um afkomu Eimskips með því að smella hér .