Eimskip mun frá og með næstu viku bjóða vikulegar siglingar til og frá tveimur höfnum í Póllandi og Klaipeda í Litháen. Siglingarnar eru hluti af samstarfi Eimskips við danska skipafélagið Unifeeder sem er eitt stærsta sinnar tegundar í siglingum innan Evrópu.
Eimskip hættir þar með siglingum eigin skipa til Póllands en eykur þess í stað tíðni siglinga á svæðið í samvinnu við Unifeeder. Með þessu nýja samstarfi mun Eimskip nýta siglingakerfi Unifeeder og bjóða betri þjónustu með frekari tengingu inn í Eystrasaltið að því er segir í tilkynningu félagsins. Þar með sé verið að auka þjónustu við viðskiptavini með tíðari siglingum til fleiri hafna.
Segir félagið siglingarnar henta vel hvort sem er í útflutning eða innflutning enda siglingaleiðin með tengingar við Århus og fleiri hafnir innan siglingakerfis Eimskips „Við höfum fundið fyrir aukinni eftirspurn viðskiptavina okkar á þessu svæði og erum að mæta henni með tíðari siglingum og fleiri viðkomuhöfnum,“ segir Matthías Matthíasson, framkvæmdastjóri sölusviðs Eimskips.
„Unifeeder er gríðarlega sterkt skipafélag og þetta samstarf opnar á enn frekari tækifæri með tengingu við þeirra öfluga og áreiðanlega flutninganet, bæði í Eystrasaltinu en einnig inn til Finnlands og fleiri hafna í Evrópu.“
Hér má sjá yfirlit yfir nýju siglingaáætlunina:
Útflutningur:
- Reykjavík - miðvikudagur
- Reyðarfjörður - fimmtudagur
- Tórshavn í Færeyjum - föstudagur
- Århus í Danmörku - mánudagur
- Klaipeda í Litháen - fimmtudagur
- Gdynia í Póllandi - föstudagur
- Szczecin í Póllandi - laugardagur
Innflutningur:
- Klaipedia - fimmtudagur
- Gdynia - föstudagur
- Szczecin - laugardagur
- Århus - fimmtudagur
- Reykjavík - mánudagur