Árið 2011 samdi Eimskip við skipasmíðastöð í Kína um smíði á tveimur gámaskipum. Fyrra skipið Lagarfoss var afhent félaginu í júní á síðasta ári. Í tilkynningu til kauphallarinnar segir að smíði á seinna skipinu hafi ekki gengið samkvæmt áætlun og ljóst sé að frekari tafa sé að vænta.

Félagið hefur nú ákveðið að nýta sér rétt sinn í samningnum við skipasmíðastöðina og hætta við smíðina. Eins og kveðið er á í samningum mun Eimskip krefjast endurgreiðslu á 13.1 milljón Bandaríkjadala (auk vaxta) sem félagið hefur lagt út vegna smíðinnar og er sú fjárhæð tryggð með bankaábyrgð.

Eimskip mun í framhaldinu skoða aðra möguleika í fjárfestingu á sambærilegu skipi.