Hagnaður Eimskipafélagsins á fyrstu níu mánuðum ársins var 5 milljarðar króna. Hagnaður eftir skatta nam 1,5 milljörðum króna. Segir í tilkynningu að hagnaðurinn sé umfram væntingar.

Heildarvelta á tímabilinu var 45 milljarðar króna. Heildareignir félagsins í lok þriðja ársfjórðungs voru 45 milljarðar króna og er eiginfjárhlutfall þess 54,3%. Vaxtaberandi skuldir eru 11 milljarðar króna.

Rekstrarhagnaður á þriðja ársfjórðungi var jákvæður um 1,7 milljarða króna og hagnaður eftir skatta var 300 milljónir króna. Segir í tilkynningunni að afkoma á þriðja ársfórðungi sé umfram væntingar. „Árstíðarbundnar sveiflur í flutningum á Íslandi eru að breytast og magnið á þriðja og fyrsta ársfjórðungi er það sama, sem er ekki í takt við árstíðarbundnar sveiflur undanfarinna ára. “

Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips segir í tilkynningu að það sé ánægjulegt að afkoma hafi verið jákvæð fjóra ársfjórðunginn í röð eftir fjárhagslega endurskipulagningu. „Flutningamagnið helst stöðugt á milli tímabila en jafnframt eru árstíðabundnar sveiflur ekki eins miklar og áður tíðkaðist. Varðandi horfur með inn- og útflutning á Íslandi teljum við að botninum sé náð og að ekki sé fyrirsjáanlegur vöxtur á árinu 2011.

Starfsemin á öðrum markaðssvæðum á Norður Atlantshafi einkennist einnig af töluverðri óvissu, meðal annars í Færeyjum þar sem hluti bankakerfisins féll og nokkur fyrirtæki eiga í erfiðleikum. Markaðir í Noregi og á Nýfundnalandi eru hinsvegar í vexti vegna nýrra fjárfestingaverkefna sem og aukningar á kvóta. Eimskip er vel í stakk búið að takast á við þessa óvissutíma. Til að tryggja viðunandi innri vöxt er félagið að vinna í því að efla þjónustuframboð félagsins í Bandaríkjunum og Kanada, ásamt því að auka flutningaþjónustu félagsins í frystiflutningsmiðlun um heim allan.“