Hagnaður Eimskipafélagsins nam 800 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaður félagsins 300 milljónum króna.
Flutningamagn í siglingakerfum félagsins jókst um tæp 11% á milli ára á tímabilinu. Hagnaðurinn fyrstu níu mánuði ársins var um 2 milljarðar króna.
Gylfi Sigfússon, forstjóri félagsins, segir í tilkynningu að afkoma félagsins sé umfram væntingar og flutningamagnið hafi aukist á milli ára.
Um 1250 manns starfa hjá Eimskip og er félagið með starfssemi í 16 löndum.