Stjórn Eimskips hefur ákveðið að höfða almennt einkamál gegn Samkeppniseftirlitinu þar sem þess verður krafist að rannsókn stofnunarinnar, sem staðið hefur yfir í um tíu ár, verði dæmd ólögmæt og henni hætt. Þetta kemur fram í tilkynningu Eimskips til Kauphallarinnar.

Í tilkynningunni segir jafnframt að Eimskip hafi áður lagt fram kröfu af sama meiði á grunni ákvæða laga um meðferð sakamála, en dómstólar féllust ekki á að unnt væri að reka málið gegn Samkeppniseftirlitinu á þeim lagagrundvelli. Þar sem dómstólar hafi hins vegar ekki tekið efnislega afstöðu til þeirra röksemda félagsins sem málsóknin var reist á, ákvað félagið að höfða almennt einkamál til að fá úr þeim skorið.

Loks segir að stefnan muni verða birt Samkeppniseftirlitinu á næstu dögum.