Flutningafyrirtækið Eimskip er í aðalhlutverki Í nýrri auglýsingu frá Facebook fyrir skipulagsmiðilinn Workplace sem ætlaður er fyrirtækjum líkt og nafnið gefur til kynna.

Auglýsingin gengur út á að sýna hvernig Workplace gagnast Eimskipum í daglegum samskiptum starfsmanna og rekstri fyrirtækisins.

Eimskip hafa einnig verið notuð sem sýnidæmi (e. case study) um hvernig Workplace getur nýst fyrirtækjum á vefsíðu Workplace. Þar er haft eftir Gylfa Sigússyni að skipulagsmiðilinn sé leið til þess að ná aukinni skilvirkni í starfsemi félagsins á heimsvísu en að bónusinn sé að aldrei hafi verið jafn mikil nánd innan fyrirtækisins.