Eimskip er í lykilhlutverki í Google Nexus auglýsingu sem gerð var fyrir komandi jólahátíð.

Auglýsingin gengur út á að sýna fólki fram á það að með spjaldtölvu, eins og Google Nexus, geta fjölskyldur haft samskipti sín á milli um jólin þótt ekki séu allir samankomnir á einum stað.

Auglýsingin var framleidd af Joint London auglýsingastofunni. Hún hefur meðal annars verið sýnd í breska sjónvarpinu núna í nóvember.

Hér má sjá auglýsinguna.