Eimskip hefur fest kaup á norska flutningafyrirtækinu Nor Lines. Kaupin falla vel að stefnu Eimskips um fjárfestingu í kjarnastafsemi og fela ekki í sér yfirtöku á miklum rekstrarfjármunum, segir í fréttatilkynningu frá Eimskipum.

„Rekstur Nor Lines hefur verið erfiður á undanförnum árum og verður starfsemin endurskipulögð til að ná fram bættri afkomu og til að efla þjónustuna, en það verður gert með því að aðlaga reksturinn að núverandi starfsemi Eimskips í Noregi. Með kaupunum mun Eimskip geta boðið viðskiptavinum sínum upp á mun víðtækari þjónustu en áður þar sem norskir inn- og útflytjendur munu njóta ávinnings af samlegðaráhrifum í áætlunarsiglingum félaganna tveggja. Áætluð ársvelta fyrirtækisins nemur um 110 milljónum evra eða um 13,6 milljörðum króna. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 200 talsins. Kaupin eru fjármögnuð með handbæru fé,“ er tekið fram í tilkynningunni.

86 ára saga

Nor Lines rekur sögu sína aftur til ársins 1930 og rekur víðtæka þjónustu í Noregi. Fyrirtækið annast bæði sjó og landflutninga. Nor Lines rekur meðal annars sjö skip á þremur siglingaleiðir til og frá Noregi. Skipaflotinn verður endurskipulagður ásamt rekstri fyrirtækisins - og Eimskip kemur til með að taka yfir rekstur fimm af sjö skipum Nor Lines.

Víðtæk flutningaþjónusta

„Nor Lines rekur víðtæka landflutningaþjónustu með 60 afgreiðslustöðum meðfram norsku strandlengjunni sem tengja saman landflutninga og siglingar og veitir þar með flutningaþjónustu heim að dyrum. Fyrirtækið rekur 14 afgreiðslustaði af þessum 60 en 46 eru í rekstri umboðsmanna. Í gegnum þjónustunetið býður fyrirtækið jafnframt upp á vöruhúsaþjónustu og flutningsmiðlun. Þjónustunet Nor Lines í landflutningum samanstendur af 450 flutningabifreiðum sem eru í eigu og rekstri undirverktaka og þjóna á 50 leiðum á milli þessara 14 afgreiðslustaða.
Nor Lines selja einnig flutninga með 11 skipum „Hurtigruten“, sem þjónustar vestur- og norðurströnd Noregs og er með daglegar viðkomu í 32 höfnum.

Kaupin eru háð samþykki norskra samkeppnisyfirvalda. Nánar verður fjallað um þau á kynningarfundi Eimskips fyrir fjárfesta og markaðsaðila þann 18. nóvember næstkomandi,“ segir að lokum í tilkynningunni.

Kaupin auka skilvirkni

Haft er eftir Gylfa Sigfússyni, forstjóra Eimskips, að: “Kaupin á Nor Lines eru stórt skref í að auka þjónustuframboð og styrkja núverandi þjónustu Eimskips í Noregi. Eimskip í Noregi rekur í dag sjö frystiskip sem sinna flutningum á milli Noregs, Hollands og Bretlands, en með þessum kaupum munum við auka skilvirkni þar sem við munum teygja flutningakerfi okkar yfir til Eystrasaltsins og Þýskalands. Við fögnum því að fá að starfa með starfsmönnum Nor Lines að því að auka skilvirkni félaganna. Kaupin eru hluti af stefnu Eimskips um ytri vöxt og munu styrkja frekar rekstur áætlunarsiglinga félagsins í Noregi.“