Eimskip hefur keypt alla hluti í Sæferðum ehf. í Stykkishólmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Sæferðir er fyrirtæki í sjótengdri ferðaþjónustu og rekur skipin Baldur og Særúnu á Breiðafirði. „Með kaupum á Sæferðum er Eimskip að stíga ákveðin skref í að styrkja starfsemi sína í sjótengdri ferðaþjónustu, en félagið hefur á undanförnum árum rekið ferjuna Herjólf á tímabundnum samningi fyrir Vegagerðina sem þjónar samgöngum og ferðaþjónustu milli lands og Vestmannaeyja. Á árinu 2014 fjárfestu Sæferðir í nýrri og stærri ferju sem tekur fleiri farþega og bíla og eykur möguleika fyrirtækisins til frekari vaxtar. Heildarvelta fyrirtækisins á árinu 2014 nam 560 milljónum króna sem samsvarar 3,6 milljónum evra. Kaupin á fyrirtækinu eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og eru gerð með þeim fyrirvara að þau verði samþykkt,“ segir í tilkynningu frá Eimskip.

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips „Ég er mjög sáttur við að hafa náð samningum við eigendur Sæferða um kaup á fyrirtækinu, enda um mjög spennandi fyrirtæki að ræða með mikla framtíðarmöguleika er snúa að ferðaþjónustu og samgöngum á vestanverðu landinu. Eimskip mun leggja mikinn metnað í að halda áfram á þeirri braut að efla bæði þjónustu við íbúa svæðisins og ferðaþjónustu í góðu samráði við heimamenn og halda áfram að veita viðskiptavinum félagsins framúrskarandi þjónustu.“