Eimskip hefur undirritað samning um smíði á tveimur nýjum gámaskipun í Kína, sem verða nýr grundvöllur að fyrirhuguðu samstarfi fyrirtækisins við Royal Arctic Line. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip.

Skipin verða bæði 2.150 gámaeiningar og verða byggð af China Shipbuilding Trading Company Limited og Guangzho Wenchong Shipyard Co. Ltd. Samningsverð hvors skips nemur um 32 milljónum dollara og er gert ráð fyrir því að skipin verði afhent á árinu 2019. Samningurinn er með fyrirvara um fjármögnun, en Eimskip vinnur að því að tryggja fjármögnun skipanna. Royal Arctic Line hefur einnig undirritað samning við sömu skipasmíðastöð um smíði á einu sambærilegu skipi. Viðskiptablaðið hafði áður gert fyriráætlanir Eimskips að umfjöllunarefni sínu.

„Skipin munu verða með ísklassa og hönnuð með tilliti til skilyrða „Polar Code“. Heildarlengd þeirra verður 180 metrar, breidd 31 metri og þau verða með TIER III vél sem er sérstaklega útbúin til að draga úr útblæstri köfnunarefnis (NOx) út í andrúmsloftið. Skipin munu auka afkastagetu og áreiðanleika þjónustunnar þar sem þau eru stærri en núverandi skip á markaðssvæðinu og vel búin til siglinga á Norður-Atlantshafi. Þau verða sparneytnari á hverja gámaeiningu samanborið við eldri skip og verða umhverfisvænni vegna innbyggðs olíuhreinsibúnaðar sem lágmarkar brennisteinsútblástur (SOx) út í andrúmsloftið. Stærri og hagkvæmari skip munu leiða til lægri rekstrarkostnaðar á gámaeiningu,“ segir í tilkynningunni.

Samnýta afkastagetu

Eimskip og Royal Arctic Line hafa jafnframt unnið að því að ramma inn fyrirhugað samstarf um samnýtingu á afkastagetu. Félögin hafa undirritað samkomulag um samstarf, en það verður staðfest seinna, eftir að það verður kynnt samkeppnisyfirvöldum ef við á. „Frekari upplýsingar verða birtar þegar þær liggja fyrir,“ segir í tilkynningunni.

Mikilvægt skref í endurnýjun og þróun skipaflotans

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, segir við tilefnið: „Það er ánægjulegt að gengið hafi verið frá samningi um smíði nýju skipanna. Þetta er mikilvægt skref í endurnýjun og þróun á skipaflota Eimskips. Við höfum einnig náð samkomulagi við Royal Arctic Line sem byggir á okkar langvarandi tengslum og samstarfi allt frá árinu 1993. Þróun hafnarsvæða í Nuuk, Reykjavík og Þórshöfn munu gefa færi á notkun stærri skipa á markaðssvæði okkar. Við gerum einnig ráð fyrir að samstarfið auki viðskipti á milli þjóðanna á norðurslóðum, sérstaklega þau takmörkuðu viðskipti sem verið hafa á milli Íslands og Grænlands þar sem beinar siglingar og tíðni ferða hefur verið ábótavant.“

Haft er eftir Verner Hammeken, forstjóra Royal Arctic Line að samkomulagið væri mikilvægt skref í að tengja Grænland við alþjóðlega markaði, háð samþykki viðeigandi aðila. „Það skapar tækifæri fyrir útflytjendur, gefur færi á frekari vinnslu afurða á Grænlandi áður en þær eru fluttar beint til áfangastaða um allan heim með hagkvæmari hætti. Einnig felur þetta í sér mikilvæg tækifæri fyrir viðskiptavini til að flytja vörur beint frá nýjum markaðssvæðum í stað þess að þurfa að fara einungis í gegnum Danmörku. Við sjáum nú aukin tækifæri og hagkvæmni til framtíðar sem auðvelda munu viðskipti við Grænland,“ er jafnframt haft eftir honum.