Eimskipafélag Íslands lagði í morgun fram beiðni um heimild til nauðasamningsumleitana hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en áform þessa efnis voru kynnt á aðalfundi félagsins í gær og eins og fram kom þá stendur til að stofna nýtt félag um reksturinn.

Þá óskaði félagið jafnframt í morgun eftir því við Kauphöllina að hlutabréf og aðrir fjármálagerningar félagsins verði teknar úr viðskiptum í kauphöllinni. Hluthafar Eimskips eru í dag 20.000 talsins.

Sjá nánar í tengdum fréttum hér að neðan.