Eimskipafélag Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynningu í ljósi þess að Kauphöll Íslands hefur athugunarmerkt hlutabréf félagsins. Það gerði Kauphöllin vegna umfjöllunar Ríkisútvarpsins um rannsókn Samkeppniseftirlitsins á meintu ólöglegu samráði forsvarsmanna félagsins við Samskip.

Viðskipti með bréf félagsins verði skoðuð

Í fréttatilkynningunni segir að leki á rannsóknargögnunum, og fjölmiðlaumræða í kjölfar hans, hafi nú þegar valdið hluthöfum félagsins tjóni. Lekinn hafi skaðað ímynd félagsins bæði hérlendis og erlendis. Segir enn fremur að leki á trúnaðargögnum skráðra félaga varði við lög um verðbréfaviðskipti, og félagið hafi nú óskað eftir því við Kauphöll Íslands og Fjármálaeftirlitið að skoðuð verði viðskipti með bréf félagsins á þeim tíma sem það hefur verið til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu. Þá hefur félagið kært lekann til lögreglu.

Um viðbrögð félagsins við lekanum segist það hafa farið ítarlega yfir öll gögn sem það hafi undir höndum. Sú yfirferð hafi hins vegar ekki varpað frekara ljósi á grundvöll málsins. Að mati félagsins komi engar nýjar upplýsingar, umfram það sem áður hafi verið tilkynnt, fram í umfjöllun Kastljóss.

Alvarleiki lekans ljósari með ósk Samkeppniseftirlitsins

Þá segir í tilkynningunni að alvarleiki lekans og umfjöllunar Kastljóss verði enn ljósari með ósk Samkeppniseftirlitsins um opinbera rannsókn á málinu þann 17. október sl. Með ósk sinni um rannsókn virðist Samkeppniseftirlitið telja að mögulegt sé að með lekanum hafi verið brotið gegn þagnarskylduákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, ákvæðum almennra hegningarlaga og ákvæðum laga um verðbréfaviðskipti.

Að lokum áréttar Eimskipafélagið að það hafni með öllu ásökunum um að hafa gerst brotlegt gegn ákvæðum samkeppnislaga. Það sé von félagsins að rannsókn á því hvernig trúnaðargögnin komust í hendur óviðkomandi upplýsist sem fyrst.

Fréttatilkynninguna má lesa í heild sinni hér .