Í frummati Samkeppniseftirlitsins (SKE), svokölluðu andmælaskjali II, er komist að þeirri niðurstöðu að Eimskip og Samskip hafi haft með sér ólögmætt samráð á árunum 2008 til 2013 og þannig brotið gegn ákvæðum samkeppnislaga og EES samningsins. Þá segir SKE að upplýsingagjöf Eimskips hafi verið ófullnægjandi og í ósamræmi við ákvæði samkeppnislaga. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fréttatilkynningu frá Eimskip vegna málsins.

Eru ætluð brot sögð mjög alvarleg í frummati SKE og að verulega íþyngjandi viðurlög komi til álita nema andmæli Eimskips breyti frummatinu. Auk þess komi til álita að kæra ætlaða ranga upplýsingagjöf til lögreglu.

Í tilkynningunni segir jafnframt að Eimskip hafni frummatinu og hafi verulegar athugasemdir við rannsóknina og telji hana hafa brotið gróflega gegn réttindum félagsins. Félagið muni leggja fram ítarlegar athugasemdir og gögn sem sýni fram á að þær ásakanir sem fram komi í frummatinu eigi ekki við rök að styðjast. Vísist í því samhengi til þess að nú séu rekin fyrir héraðsdómi mál um kröfu bæði félagsins og fyrrverandi forstjóra þess um að rannsókn á hendur þeim sé ólögmæt og verði hætt.

,,Eimskip upplýsti í fréttatilkynningu 29. mars sl. að félagið myndi ekki skila athugasemdum við andmælaskjal I fyrr en andmælaskjal II hefði verið afhent. Samkeppniseftirlitið hefur veitt félaginu frest til 1. febrúar 2020 til að setja fram athugasemdir við andmælaskjal I. Eimskip fékk gögn málsins ekki afhent samhliða andmælaskjali II, en frestur til að setja fram athugasemdir við andmælaskjal II var veittur til 1. apríl 2020. Mun félagið óska eftir aðgangi að gögnunum og í framhaldi setja fram andmæli sín og athugasemdir," segir í niðurlagi tilkynningar Eimskips.

Rannsókn SKE á meintum samkeppnislagabrotum Eimskips hefur staðið yfir í tæpan áratug en ljóst er að einhver bið verður á endanlegri niðurstöðu eftirlitsins.

Tilkynningu Eimskips má sjá í heild hér að neðan:

Eimskip barst fyrr í dag andmælaskjal II frá Samkeppniseftirlitinu sem er liður í málsmeðferð rannsóknarinnar sem staðið hefur í tæpan áratug. Hefur félagið fyrst nú fengið í hendur með tæmandi hætti þær ásakanir sem á félagið eru bornar. Skjalið felur í sér frummat Samkeppniseftirlitsins, en ekki bindandi stjórnvaldsákvörðun. Það er ritað í því skyni að stuðla að því að málið verði að fullu upplýst áður en ákvörðun er tekin og til þess að auðvelda félaginu að nýta sér andmælarétt sinn skv. stjórnsýslulögum.

Ekki liggja fyrir upplýsingar um mögulega sektarfjárhæð, komi til hennar.

Um er að ræða ásakanir sem virðast vera vegna efnislega sömu ætluðu brota og lýst var í fyrra andmælaskjali Samkeppniseftirlitsins, utan þess að ætlað brotatímabil er að frummati talið standa til ársins 2013, þó verulega hafið dregið úr ætluðu samráði á því ári að mati Samkeppniseftirlitsins.

Í andmælaskjali II er komist að þeirri frumniðurstöðu að Eimskip og Samskip hafi haft með sér ólögmætt samráð á rannsóknartímabili málsins 2008 til 2013 og brotið þannig gegn 10. gr. samkeppnislaga og 53. gr. EES samningsins. Einnig að upplýsingagjöf félagsins hafi verið ófullnægjandi og í ósamræmi við 19. gr. samkeppnislaga.

Reifun ætlaðra brota er að finna í hjálögðu fylgiskjali sem er yfirlit Samkeppniseftirlitsins um ætluð brot, klippt úr andmælaskjali II. Persónuupplýsingar hafa verið afmáðar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Athygli er vakin á því að það yfirlit felur einungis í sér frummat Samkeppniseftirlitsins sem getur breyst í kjölfar þess að félagið leggur fram gögn og setur fram sínar athugasemdir.

Ætluð brot eru að frummati Samkeppniseftirlitsins sögð mjög alvarleg og sagt að verulega íþyngjandi viðurlög komi til álita nema andmæli félagsins breyti því frummati. Þá komi til álita að kæra ætlaða ranga upplýsingagjöf einstaklinga til lögreglu.

Eimskip hafnar þessu frummati og hefur verulegar athugasemdir við rannsóknina og telur hana hafa brotið gróflega gegn réttindum félagsins. Mun félagið leggja fram ítarlegar athugasemdir og gögn sem sýna fram á að þær ásakanir sem fram komi í frummatinu eigi ekki við rök að styðjast. Vísast í því samhengi til þess að nú eru rekin fyrir héraðsdómi mál um kröfu bæði félagsins og fyrrverandi forstjóra þess um að rannsókn á hendur þeim sé ólögmæt og verði hætt.

Eimskip upplýsti í fréttatilkynningu 29. mars sl. að félagið myndi ekki skila athugasemdum við andmælaskjal I fyrr en andmælaskjal II hefði verið afhent. Samkeppniseftirlitið hefur veitt félaginu frest til 1. febrúar 2020 til að setja fram athugasemdir við andmælaskjal I. Eimskip fékk gögn málsins ekki afhent samhliða andmælaskjali II, en frestur til að setja fram athugasemdir við andmælaskjal II var veittur til 1. apríl 2020. Mun félagið óska eftir aðgangi að gögnunum og í framhaldi setja fram andmæli sín og athugasemdir.