Eimskip opnar aðra skrifstofu sína á Ítalíu í dag, þann 2. apríl, nánartiltekið í Genoa á Ítalíu. Opnun skrifstofu í Genoa er liður í markvissri uppbyggingu Eimskips í Evrópu og miðast að því að styrkja enn frekar stöðu félagsins á ítalska markaðnum segir í frétt félagsins.

Skrifstofan mun leggja sérstaka áherslu á flutningsmiðlun og hitastýrða flutninga.

Genoa er ein mikilvægasta höfnin á Ítalíu og gegnir lykilhutverki þegar kemur að flutningi á sjávar- og kjötafurðum, grænmeti og ávöxtum. Því er þetta kjörin staðsetning til að þróa viðskiptamöguleika á sviði hitastýrðra flutninga segir í frétt félagsins.