Eimskip opnar fyrstu skrifstofu sína í Japan í dag. Opnun skrifstofunnar er liður í markvissri uppbyggingu Eimskips í Asíu, en skrifstofan er sú fimmta í heimasálfunni og sú fyrsta utan Kína að því er segir í tilkynningu.
Umsvif Eimskips í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu eru ört vaxandi og mun hin nýja starfsstöð gegna lykilhlutverki í að efla enn frekar þjónustu á þessum slóðum. Skrifstofan er staðsett í Tókýó og mun bjóða upp á alhliða flutningaþjónustu til fyrirtækja á japönskum markaði. Meðal þjónustuþátta í boði má nefna umboðsþjónustu í skipaflutningum, innflutnings og útflutningsþjónustu, ásamt frysti- og kælugeymslumöguleika. Þar að auki hefur Eimskip Japan nú þegar hafið rekstur á einu stórflutningaskipi.
Einar Þór Guðjónsson, Framkvæmdastjóri Eimskips í Asíu segir í tilkynningunni: "Með auknum viðskiptum í Asíu hafa skapast miklir vaxtarmöguleikar á flutningastarfsemi í álfunni og með opnun nýrrar starfsstöðvar í Tókýó erum við betur í stakk búin til að veita viðskiptavinum okkar hágæða flutningsþjónustu á heimsvísu.?
Framkvæmdarstjóri Eimskip Japan er Yoshito Oyanagi, en hann hefur mikla reynslu af flutningastarfsemi í Japan.