Eimskip hefur ákveðið að ráða The Yucaipa Company, sem er stærsti einstaki hluthafi Eimskips, til þess að veita ráðgjöf um mögulegar fjárfestingar. Markmiðið er að leita fjárfestingatækifæra sem falla að stefnu Eimskips um að vera leiðandi flutningafélag á Norður-Atlantshafi.

The Yucaipa Companies mun veita félaginu ákveðna fjármálaráðgjöf við útfærslu markmiðsins. Í yfirlýsingu frá Eimskip segir að TYC hafi víðtæka reynslu á sviði fjárfestinga og lokið meira en 60 yfirtökum samtals að verðmæti yfir 35 milljarðar dollara. TYC kom að endurskipulagningu Eimskips árið 2009. TYC á 27% af útistandandi hlutafé Eimskips.