Eimskipafélag Íslands hefur ákveðið að ráðast í byggingu á fullkominni 10.000 tonna frystigeymslu á athafnasvæði sínu í Hafnarfirði.

Ákvörðunin er tekin í ljósi þess að veruleg aukning hefur orðið í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski sem kallar á vaxandi frystigeymsluþjónustu. Einnig er aukin eftirspurn eftir vöruhótelþjónustu fyrir frystar neytendavörur. Eimskip hefur verið með starfsemi í Hafnarfirði allt frá árinu 1970 og rekur þar frystigeymsluna Fjarðarfrost sem rúmar um 3.000 tonn, ásamt því að vera með umfangsmikla löndunarþjónustu fyrir sjávarútveginn auk tengdrar hliðarþjónustu.

Samkvæmt fréttatilkynningu er markmið félagsins að byggja upp öfluga þjónustumiðstöð fyrir sjávarútveginn staðsetta í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarhöfn sé vel staðsett og bjóði upp á góða aðstöðu fyrir útgerðir.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist fyrir áramót og að fyrsti áfangi nýrrar frystigeymslu verði tilbúinn til notkunar sumarið 2015. Auk þess er til staðar möguleiki á að stækka nýju geymsluna í áföngum um allt að 14.000 tonn í samræmi við þarfir viðskiptavina fyrirtækisins.