Eimskip hefur samið við VHE, Kælismiðjuna Frost og Suðurverk um byggingu á 10.000 tonna frystigeymslu á athafnasvæði félagsins í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Veruleg aukning hefur orðið í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski sem kallar á aukna frystigeymsluþjónustu. Einnig er aukin eftirspurn eftir vöruhótelþjónustu fyrir frystar neytendavörur. Eimskip hefur verið með starfsemi í Hafnarfirði allt frá árinu 1970 og rekur þar frystigeymsluna Fjarðarfrost sem rúmar um 3.000 tonn, ásamt því að vera með umfangsmikla löndunarþjónustu fyrir sjávarútveginn auk tengdrar hliðarþjónustu,“ segir í tilkynningunni.

Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi nýrrar frystigeymslu verði tilbúinn til notkunar á þriðja ársfjórðungi 2015 og verkinu verði að fullu lokið fyrir árslok. Auk þess er möguleiki fyrir hendi á að stækka nýju geymsluna í áföngum um allt að 14.000 tonn til viðbótar í samræmi við þarfir viðskiptavina og markaðarins.

Byggingin er teiknuð af Önnu Margréti Hauksdóttur hjá AVH arkitektum en aðrir hönnuðir og ráðgjafar eru VSB, Efla og VSÓ Ráðgjöf.