Gengi hlutabréfa Eimskips hækkaði um 1,07% í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta hækkun dagsins. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Haga um 0,85% g Icelandair Group um 0,54%.

Á hinn bóginn lækkaði gengi bréfa VÍS um 1,47%, Össurar um 0,79%, Vodafone um 0,65%, Regins um 0,60%, TM um 0,34% og N1 um 0,27%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,35% og endaði hún í rétt tæplega 1.181 stigi. Heildarvelta með hlutabréf nam 712,6 milljónum króna.