Eimskip hefur ákveðið að hefja siglingar til Helsingborgar í Svíþjóð frá og með 4. maí 2017. Félagið mun á sama tíma hætta siglingum til Halmstad þar sem það hefur haft viðkomur undanfarin ár. Færslan til Helsingborgar er liður í stöðugri uppbyggingu á siglingakerfi félagsins, en með breytingunni komast viðskiptavinir í enn betri tengingu við aðra markaði og önnur skipafélög. Mikil aukning hefur verið í flutningum á milli Íslands og Svíþjóðar, til og frá Færeyjum og í Atlantshafsflutningum til og frá Norður-Ameríku.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip.

Skrifstofa félagsins kemur til með að flytja í næsta nágrenni hafnarinnar í Helsinborg til að vera í meiri nálægð við gámavöll og skipakomur. Vöruhúsi félagsins verður komið upp nálægt höfninni þar sem lestun og losun gáma fer fram. Síðasta viðkoma rauða leiðar Eimskips verður þann 27. apríl næstkomandi, að því er kemur fram í fréttatilkynningunni.

„Flutningurinn til Helsingborgar í Svíþjóð er mikilvægt skref til að efla enn frekar þjónustu við viðskiptavini Eimskips. Hafnaryfirvöld hafa fjárfest mikið á undanförnum árum í umgjörð hafnarinnar og hefur höfnin nú yfir að ráða hátæknivæddu hafnarsvæði sem auka mun áreiðanleika þjónustunnar. Uppbyggingin hefur meðal annars leitt til aukinnar geymslugetu á hitastýrðum gámum og hefur öll meðhöndlun og þjónusta þeim tengdum verið efld. Gámahöfnin í Helsingborg er sú fjórða stærsta í Skandinavíu,“ er einnig tekið fram þar.

„Flutningurinn til Helsingborgar skiptir miklu máli fyrir framtíðaruppbyggingu Eimskips á siglingakerfi félagsins. Höfnin í Helsingborg opnar betri möguleika fyrir viðskiptavini okkar,  bæði hvað varðar inn- og útflutning til og frá Íslandi, Færeyjum og Norður-Ameríku. Við fögnum því að hafa náð góðu samkomulagi við hafnaryfirvöld í Helsingborg og tökum fagnandi þeim tækifærum sem opnast við þessa breytingu. Á sama tíma kveðjum við Halmstad eftir gott samstarf undanfarin ár,“ segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips.

„Við bjóðum Eimskip velkomið til hafnarinnar í Helsingborg þar sem Eimskip mun tengja okkur betur við Norður- Atlantshafið og þá sérstaklega Færeyjar, Ísland og Norður-Ameríku. Við efumst ekki um að þetta mun opna mikla möguleika fyrir Svíþjóð og höfnina í Helsingborg,“ er jafnframt haft eftir Niels Vallø, forstjóri hafnarinnar í Helsingborg.