Fyrra skipið af tveimur nýjum gámaskipum Eimskipafélagsins var sjósett í Weihai í Kína síðastliðinn sunnudag. Sjósetningin gekk að óskum og er reiknað með afhendingu í byrjun janúar á næsta ári.

Gert er ráð fyrir því að skipið verði komið í heimahöfn hér á landi á öðrum ársfjórðungi sama ár. Áætlað er að seinna skipið verði afhent um svipað leyti og það fyrra leggi við bryggju hér.