Tap Eimskipafélagsins eftir skatta var 19,9 milljón evra á þriðja ársfjórðungi samanborið við 14,1 milljóna evra hagnað á sama tíma í fyrra, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu.

Þá kemur fram að formlegt söluferli á Versacold Atlas er hafið undir stjórn kanadískra banka.

Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) nam 41,1 milljónum evra, eða 10,2% í hlutfalli af tekjum.

EBITDA jókst um 52.2% frá fyrra ári þar sem hún var 27.0 milljónir evra, eða 9,9% framlegð.

Heildartekjur á þriðja ársfjórðungi námu 403,2 milljónum evra sem er 48,3% tekjuaukning á milli ára. Undirliggjandi vöxtur samstæðunnar er 4,3% á fjórðungnum.

Í fréttatilkynningunni segir að góður árangur náðist í flutningastarfsemi félagsins en auk þess var rekstur Versacold Atlas í samræmi við áætlun.

Heildarfjármagnskostnaður er 33,2 milljónir evra á þriðja á þriðjaársfjórðungi, þar af nemur gengistap um 3,1 milljónum evra.

„Flutningastarfsemi Eimskips skilar áfram viðunandi árangri og er í samræmi við okkar áætlanir,“ segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, í fréttatikynningunni.

„Fjármagnsliðir halda hinsvegar áfram að hafa umtalsverð áhrif á afkomu félagsins en yfirlýst markmið okkar er að lækka skuldir samstæðunnar. Auk þess er unnið að ýmsum hagræðingarverkefnum innan félagsins til að bregðast við ytri aðstæðum þar sem búast má við samdrætti í flutningastarfsemi. Lykiláhersla verður lögð á endurskipulagningu félagsins og markmið okkar er að eiginfjárhlutfall félagsins verði 25% og í því samhengi er formlegt söluferli hafið á Versacold Atlas í samstarfi við kanadíska banka,“ segir hann.