Eimskip-CTG í Noregi tók í gær við nýju frystiskipi, Holmfoss, sem er fimmta nýja frystiskipið sem félagið fær afhent á rúmlega tveimur árum. Sjötta frystiskipið er í smíðum fyrir félagið. Afkastageta Eimskip-CTG meira en tvöfaldast með tilkomu nýju skipanna og er félagið nú með einn yngsta flota frystiskipa í heimi.

Í tilkynningu vegna afhendingarinnar segir að fjárfestingin í sex nýjum frystiskipum sé í samræmi við stefnu félagsins að verða leiðandi flutningsaðili á Norður Atlantshafi en nýr skipafloti tryggir hagkvæmari flutninga á vegum félagins.

Heildarfjárfestingin í sex nýjum skipum fyrir Eimskip-CTG nemur um 8 milljörðum króna en samið var um smíði þessara skipa á árunum 2004 til 2006.

Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips segir í tilkynningunni: “Við erum mjög ánægð með að bæta enn einu frystiskipi við skipaflotann. Eimskip hefur þegar bætt við fimm nýsmíðuðum skipum á rúmum tveimur árum. Þegar við fengum fyrsta skipið afhent var það fyrsta nýsmíði á frystiskipi af þessari stærð í heiminum í hátt í tvo áratugi. Nýja skipið er fimmta skipið af sex sem tekið er í notkun eftir að við kynntum að við ætluðum að ráðast í smíði nýrra frystiskipa árið 2004. Nýju skipin spila lykilhlutverk í að útvíkka og bæta “door to door” þjónustu milli Noregs, Bretlands, Belgíu og Hollands og styrkja stöðu Eimskips sem leiðandi flutningsaðili á Norður Atlantshafi.”

Frysti- og gámaskip

Holmfoss, nýja frystiskipið er blanda af frysti- og gámaskipi og er 82 metra langt og 16 metra breitt og er það sérstaklega styrkt til siglinga í ís. Hámarksganghraði þess er 16 sjómílur á klukkustund og burðargeta  er um 2.500 tonn. Skipið getur borið 2.000 bretti og 28 gámaeiningar á þilfari. Á skipunum er síðuport af fullkomnustu gerð sem styttir löndunar- og lestunartíma um allt að helming.

Eimskip-CTG sérhæfir sig í flutningum og geymslu á frosnum og kældum sjávarafurðum á Norður Atlantshafi. Með öflugu flutningskerfi býður Eimskip-CTG sjávarútvegsfyrirtækjum alhliða þjónustu, allt frá löndun og geymslu sjávarafurða til flutninga til kaupenda ásamt tengdri þjónustu. Flutningsnet Eimskip-CTG samanstendur nú af 15 frystiskipum og fimm frystigeymslum í Norður og Vestur – Noregi. Fyrirtækið er með starfsstöðvar á lykilstöðum í Noregi og í Murmansk í Rússlandi. Frystiskipið var byggt af Myklebust Verft AS í Noregi.

Skipið er nefnt eftir fossi í samræmi við hefð Eimskips að nefna öll skip sín eftir fossum. Holmfoss er foss í ánni Pasvikelva. Áin Pasvikelva rennur á landamærum Noregs og Rússlands og er nafnið valið til að undirstrika mikilvægi rússneskra viðskiptavina Eimskip-CTG, samkvæmt því sem segir í tilkynningunni.