Eimskip tók í dag við nýju skipi, Lagarfossi, í Kína. Samningur var gerður um smíði tveggja skipa í júní 2011. Í ljósi þess að verkinu seinkaði var samið um tæplega 11 milljóna dollara afslátt frá upphaflegu samningsverði skipanna. Viðræður eru í gangi um afhendingartíma seinna skipsins sem mun skýrast á þriðja ársfjórðungi. Við skipinu tók skipstjóri þess, Guðmundur Haraldsson, ásamt 11 manna íslenskri áhöfn.

Í tilkynningu frá Eimskip til Kauphallarinnar segir að Lagarfoss muni á leið sinni til Íslands hafa viðkomu í kínversku hafnarborginni Qingdao til að lesta gáma, m.a. fyrir viðskiptavini félagsins í tilefni af nýjum fríverslunarsamningi Íslands og Kína. Skipið mun einnig flytja 200 nýja frystigáma sem félagið festi kaup á í Kína. Jafnframt verða fluttir gámar til Rotterdam fyrir erlenda viðskiptavini.

Skipið mun sigla um 11 þúsund sjómílur á leið sinni til Rotterdam sem svipar til vegalengdarinnar á milli Norður- og Suðurpólsins.

Áætlað er að Lagarfoss verði í Rotterdam 12. ágúst næstkomandi og í Reykjavík þann 17. ágúst.

Lagarfoss er 875 gámaeiningar að stærð, þar af með tengla fyrir 230 frystigáma. Burðargeta skipsins er um 12 þúsund tonn, það er 140,7 metrar á lengd, 23,2 metrar á breidd og ristir 8,7 metra. Tveir 45 tonna kranar eru á skipinu.

Stjórnhæfni skipsins er góð, en það er m.a. búið öflugum skut- og bógskrúfum og er sérstaklega styrkt fyrir íssiglingar, með ísklassa 1A.

Lagarfoss mun leysa Selfoss af á gulu leiðinni, en það skip mun fara í önnur verkefni.

Lagarfoss er sjöunda skipið sem ber þetta nafn hjá félaginu. Lagarfoss I var þriðja skipið sem Eimskip eignaðist og var það í eigu félagsins frá 1917 til 1949.