Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, segir efnahagsástand í Evrópu hafa áhrif á sölu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja og er það meðal mögulega áhrifaþátta á afkomu Eimskips. Óvissa um fjárfestingar í orkufrekum iðnaði á Íslandi geta einnig haft áhrif á flutningamagn á næstu misserum.

Gylfi segist ánægður með afkomuna og býst við að áætlanir fyrir árið standist.