Eimskipafélag Íslands [ HFEIM ] hefur afskrifað eignarhlut í dótturfélagi sínu, Innovate Holding, í Bretlandi. Bókfært virði eignarhluts er 74,1 milljónir evra, sem afskrifaður er að fullu á öðrum ársfjórðungi. Unnið er að sölu eigna Innovate í samstarfi við ráðgjafa í Bretlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskipafélaginu.

Í tilkynningunni segir: „Innovate sérhæfir sig í hitastýrðum flutningum og geymslum í Bretlandi og starfrækir m.a. um 25 vörugeymslur á 11 stöðum. Eimskip fjárfesti í Innovate á árunum 2006-2007 og á nú 100% eignarhlut í félaginu. Markaðsaðstæður í Bretlandi hafa verið erfiðar undanfarna mánuði og nýting vöruhúsa og flutningakerfa verri en búist hafði verið við. Samhliða uppbyggingu Innovate gerði félagið langtímaleigusamninga vegna vöruhúsa og flutningakerfis, en forsendur um nýtingu þeirra hafa ekki gengið eftir. Þá hefur fjármagns- og leigukostnaður félagsins í hlutfalli af tekjum einnig stóraukist og taprekstur gert það að verkum að félagið er of veikburða til að halda áfram starfsemi.

Stjórn Eimskips hefur ákveðið að leggja ekki frekara fjármagn inn í rekstur Innovate, m.a. í ljósi þess að umtalsvert fjármagn þarf til að tryggja áframhaldandi rekstur félagsins og vegna áframhaldandi samdráttar á breska markaðnum.

Eimskip hefur á undanförnum vikum unnið með ráðgjafafyrirtæki í Bretlandi að sölu eigna Innovate. Í því ferli hefur verið lögð rík áhersla á að vernda hagsmuni viðskiptavina og kröfuhafa Innovate, þannig að þær breytingar sem fylgja sölu einstakra eigna félagsins hafi sem minnst áhrif á viðskiptavini þess. Breytingar á starfsemi Innovate og væntanleg eignasala, mun ekki hafa nein áhrif á starfsemi Eimskips á öðrum mörkuðum.

Ítarleg skoðun fer fram á undirbúningsferli vegna kaupa á Innovate

Stjórn Eimskip mun láta framkvæma ítarlega skoðun á því ferli sem viðhaft var við kaupin á Innovate.  Fyrrum eigendur Innovate þeir Stephen Savage, Stephen Dargavel og Peter Osborne hafa allir látið af störfum og hætt í framkvæmdastjórn Eimskips.

Fjárhagsleg áhrif vegna afskriftar á eignarhlut í Innovate

Á árinu 2008 var búist við að tekjur Innovate næmu um 300 milljónum evra, en þau markmið hafa ekki gengið eftir. Með afskrift á eignarhlut í Innovate og sölu þeirra eigna, eru fjárhagsleg markmið samstæðunnar því endurskoðuð fyrir árið 2008.  Á sama tíma verður rekstraráætlun félagsins endurskoðuð í ljósi breyttra markaðsaðstæðna.

Búist er við að heildartekjur Eimskips á árinu 2008 verði 1,4 milljarðar evra (áður 1,9 milljarðar evra). Lækkun frá fyrri tekjuáætlun skýrist af Innovate (300 milljónir evra) og vegna lækkunar á flutningatekjum og gengisáhrifa (200 milljónir evra). Reiknað er með að framlegðarhlutfall verði um 11,5% (áður 9,5%). Hærra framlegðarhlutfall skýrist að mestu leiti af því að hætt hefur verið við fyrirhugaða eignasölu í Bandaríkjunum og Kanada, sem mun endurspeglast í hærri framlegð en á móti hærri fjármagnskostnaði.

Áhrif á eiginfjárstöðu Eimskips og endurfjármögnun:

Bókfært virði Innovate í efnahagsreikningi Eimskips var 74,1 milljónir evra. Í ljósi bágrar fjárhagsstöðu Innovate, þar sem unnið er að sölumeðferð allra eigna félagsins, mun Eimskip gjaldfæra bókfært virði eignarhlutarins að fullu á öðrum ársfjórðungi (1. febrúar - 30. apríl). Umrædd afskrift eignarhlutarins í Innovate, er óháð væntanlegri sölu eigna Innovate. Eiginfjárstaða Eimskips mun veikjast við afskrift eignahlutarins í Innovate, en stjórn félagsins skoðar nú ýmsa valkosti sem munu styrkja eiginfjárhlutfall félagsins.

Hagræðing í rekstri Eimskips

Í ljósi fyrirsjáanlegs samdráttar í flutningum mun félagið á næstu mánuðum leita leiða til að hagræða í rekstri og aðlaga félagið að breyttum markaðsaðstæðum. Siglingakerfi Eimskips er sveigjanlegt og einn af helstu styrkleikum þess er hversu fljótt það getur aðlagað sig að breyttum aðstæðum og munu stjórnendur félagsins skoða þau mál gaumgæfilega á næstu mánuðum.

Stjórn Eimskips metur valkosti sem tengjast rekstri Versacold Atlas

Versacold Atlas er stærsta félag sinnar tegundar í heiminum og starfrækir m.a. um 120 kæli- og frystigeymslur í Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Argentínu, Nýja Sjálandi og Asíu. Rekstur félagsins hefur gengið vel og góður árangur náðst í samþættingu Versacold og Atlas frá sameiningu þeirra árið 2007, og áfram er búist við góðum rekstrarárangri þeirra.  Með áframhaldandi eignarhlut Eimskips í Versacold Atlas verður samvinna félaganna tryggð til framtíðar.

Í tengslum við kaup Eimskips á kæli- og frystigeymslufyrirtækjunum Versacold og Atlas í Bandaríkjunum og Kanada á árinu 2007, var ákveðið að vinna að sölu á hluta af eignum félaganna,  með endurleigu. Frá kaupum hafa verið seldar eignir að verðmæti um 462 milljónir evra (690 milljónir kanadískra dala), sem voru endurleigðar. Ný stjórn félagsins hefur ákveðið að hverfa frá frekari sölu eigna og meta aðra kosti, ss. að skoða möguleika þess að skrá Versacold og Atlas á hlutabréfamarkað í Kanada, með það að markmiði að lækka verulega skuldastöðu Eimskips og gera raunveruleg verðmæti Versacold Atlas sýnilegri.“