Hf. Eimskipafélag Íslands hefur gripið til umfangsmikilla hagræðingaraðgerða í ljósi efnahagsaðstæðna, sem meðal annars koma fram í verulegum samdrætti á innflutningi til landsins að því er kemur fram í tilkynningu félagsins.

Þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til er fækkun skipa sem þjónað hafa inn- og útflytjendum félagsins á Íslandi.   Fækkað var úr 11 skipum í átta, auk þess sem gripið var til margra anarra hagræðingaraðgerða er snúa að siglingakerfinu, innanlandskerfinu og öðrum þáttum í rekstri félagsins.

Í tengslum við flutningaþjónustu Eimskips á Íslandi starfa um 1.500 starfsmenn þar af um 900 á Íslandi. Til að komist verði hjá verulegri fækkun starfsmanna hefur verið ákveðið að lækka laun um 10% hjá þeim starfsmönnum sem hafa yfir 300.000 kr. mánaðarlaun ásamt því að draga úr vakta- og yfirvinnu. Þrátt fyrir þessar aðgerðir var ekki komist hjá því að grípa til uppsagna í lok mánaðarins og verður 25 starfsmönnum á Íslandi og 47 starfsmönnum í Evrópu sagt upp.

Áætlaður sparnaður á ársgrundvelli mun vera 2.4 milljarðar króna þar af 550 milljónir kr. vegna lækkunar launakostnaðar.

Gylfi Sigfússon forstjóri:  “Rétt eins og önnur fyrirtæki í landinu er Eimskip að sigla í gegnum erfitt skeið sem kemur meðal annars fram í verulegum samdrætti í innflutningi.  Ofan á þetta bætast erfiðar aðstæður á alþjóðflutninga- og fjármagsmörkuðum. Því var okkur nauðugur einn kostur að grípa til umfangsmikilla hagræðingaraðgerða. Af tveimur slæmum kostum var það frekar vilji okkar að lækka laun starfsmanna sem hafa yfir 300 þúsund í mánaðarlaun, fremur en segja upp fleiri starfsmönnum í því erfiða árferði sem nú ríkir á vinnumarkaði og almennt í íslensku þjóðfélagi," segir Gylfi í frétt Eimskipafélagsins.