Heildarvelta Eimskipafélagsins á árinu 2010 var 59 milljarðar króna (EUR 365 m) og rekstrarhagnaður (EBITDA) var  um 6,2 milljarðar króna, (EUR 38,6 m). Hagnaður eftir skatta var 2 milljarðar króna (EUR 12,2 m). Heildareignir félagsins í lok desember voru 44 milljarðar ISK (EUR 285 m) og er eiginfjárhlutfallið 57%. Vaxtaberandi skuldir eru 11 milljarðar ISK (EUR 72 m).  Flutningamagn samstæðunnar í áætlanasiglingum dróst saman um 0,4% milli ára en flutningamagn í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun hjá Eimskip jókst um 14% á milli ára. Félagið birti uppgjör sitt í dag.

Tilkynning frá Eimskipafélaginu:

4. ársfjórðungur

„Rekstrarhagnaður (EBITDA) á fjórða ársfjórðungi var  um 1,4 milljarðar ISK (EUR 8,6 m) sem er sama afkoma og árið 2009. Hagnaður eftir skatta var 457 milljónir ISK (EUR 2,8 m) samanborið við 372 milljónir (EUR 2,3m) árið 2009. Afkoma á fjórða ársfjórðungi er í takt við væntingar stjórnenda þrátt fyrir að flutningamagn í áætlanasiglingum  hafi dregist saman um 2,3% frá fjórða ársfjórðungi ársins 2009.

Gylfi Sigfússon forstjóri :

„Við náðum markmiðum okkar í rekstri þetta fyrsta heila rekstrarár frá endurskipulagningu og það er jafnframt  ánægjulegt að sjá að félagið er að skila hagnaði á öllum ársfjórðungum frá endurreisn.  Það sem veldur helst áhyggjum er að flutningamagn í áætlana flutningum er ekki að vaxa á milli áranna 2009 og 2010 og ef eitthvað er þá er magnið að dragast saman nú á síðustu mánuðum ársins 2010 og í byrjun árs 2011. Það er hinsvegar ánægjulegt að sjá að flutningamagn í frystiflutningsmiðlun félagsins utan Íslands er að vaxa um 14% á  á milli ára.  Horfur fyrir árið 2011 gera ekki ráð fyrir mikilli magnaukningu í áætlanasiglingum, enda ekki forsendur fyrir því hvorki á Íslandi né í Færeyjum.  Ástandið  í Færeyjum hefur valdið okkur áhyggjum en þó virðast hlutirnir vera að þróast í rétta átt.

Helstu verkefni  félagsins á árinu 2010 voru að sníða reksturinn að breyttum markaðsaðstæðum, efla innviði félagsins og gera starfsemina skilvirkari, skipuleggja endurnýjun fastafjámuna félagsins og framtíðarstefnu og að gera Eimskip að betri vinnustað. Til að mynda hefur félagið unnið að því að efla þjónustu við viðskiptavini félagsins með opnun á nýjum þjónustuvef sem ber nafnið e-Port,  en vefurinn hefur  lagst vel í viðskiptavini félagsins enda þróaður í nánu samstarfi við okkar helstu viðskiptavini.

Vonandi getum við farið að sjá fram á betri tíma hvað varðar aukningu hagvaxtar og uppbyggingu atvinnulífs en óvissunni þarf að eyða og skapa heilsteypta framtíðarsýn. Tafir á því ferli skaða allt uppbyggingastarf. Starfsmenn Eimskips líta björtum augum til framtíðarinnar en árið 2011 verður ár uppbyggingar og endurreisnar í íslensku atvinnulífi og eftir það fara vonandi hjólin að snúast.“

Um Eimskip

Eimskip er með starfsemi í 16 löndum, rekur 19 skip og hefur á að skipa um 1.250 starfsmönnum, en af þeim vinna um 730 á Íslandi. Um helmingur af tekjum félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands.

Stefna félagsins er að bjóða viðskiptavinum félagsins alhliða flutningaþjónustu á Norður Atlantshafssvæðinu, ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga frystiflutningsmiðlun um heim allan.“