Stórleikararnir Michael Gambon, Stanley Tucci og Sofie Grabol munu koma til Íslands snemma á næsta ári til þess að taka upp sjónvarpsþættina Fortitude. Þetta eru þrettán þátta sjónvarpsröð sem Simon Dold skrifar handriðið að, eftir því sem erlendir fjölmiðlar greina frá.

Þættirnir fjalla um morð sem framið er í litlu samfélagi og hvernig breska lögreglan vinnur að lausn glæpsins. Sofie Grabol lék rannsóknarlögreglumanninn Söru Lund sjónvarpsþáttunum Killing, sem voru byggðir á dönsku þáttunum Forbrydelsen. Hún leikur bæjarstjóra í Fortitude. Michael Gambon lék Dumbledore professor í myndunum um Harry Potter. Stanley Tucci á margar stórmyndir að baki en hann lék til dæmis í Hunger Games.