Áætlað er að norður-suðurbraut á Reykjavíkurflugvelli fari ekki árið 2016 heldur verði áfram á sínum stað, í það minnsta til ársins 2022. Þannig verði hægt að tryggja áfram flugsamgöngur frá höfuðborgarsvæðinu til annarra landshluta.

Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi sem Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra, Jón Gnarr borgarstjóri og Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, boðuðu sameiginlega til í dag.

Á blaðamannfundinum kom fram að Reykjavikurborg væri reiðubuin að setjast niður með rikinu og ræða framhaldið

Í framhaldinu stendur svo til að kanna önnur möguleg svæði fyrir framtíðarflugvöll. Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra og núverandi aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, mun leiða það starf.